Kúnst í gleri & mynd  
line decor
  
line decor

 
Nýtt efni
















 
 
 
Velkomin á síðuna mína



Nýtt efni

Nýtt efni, skálar, stjakar og myndir unnið með ösku úr Eyjafjallajökli.

Góð verð á gjafavörum. Tilboð á glermyndverkum.





Kerta stjakar í ýmsum stærðum , útfærslum og litum.

 


Vil þakka öllum sem komu til að samgleðjast mér við opnun sýningar minnar inn í Energíu. Hérna er linkur að myndunum sem voru á sýningunni. Sýning.


Nýjar vörur, stjakar, bakkar og diskar! Glerverk.


Bakkar og kertastjakar, tilbúin gjafavara.

Ég er búin að útbúa ný glerverk og hef verið að standsetja nýja sýningaraðstöðu fyrir verkin mín, verið velkomin að hafa samband og skoða. Ég er að vinna við að breyta og taka til í Glervöru síðunni minni og ætla að setja inn allt nýja efnið frá mér ásamt því eldra sem er óselt, inn á þá síðu... Hérna má skoða bæði ný og eldri glerverk sem ég á núna til sölu. Glerverk.

Nýtt efni frá mér þessa dagana eru grunnar skálar 30x30 með skreytingum. Þessar skálar sýnist mér ætla að verða mjög vinsælar. Engin skál er eins, skrautið er mismunandi á hverri skál.







Hérna er ég með verkið mitt, "Tangó Ást". Verkið sjálft er 40cm x 40cm.

Komið þið sæl og velkomin á heimasíðuna mína. Mig hefur lengi langað til að setja upp svona vefsíðu þar sem ég hefði tækifæri á að kynna verkin mín sem öll eru handunnar af mér og geta boðið áhugasömum til kaups. Verkin sem ég hef að bjóða eru tilvalin gjöf við hvaða tækifæri og tilefni sem er, s.s., jólagjafir og brúðkaupsgjafir svo eitthvað sé nefnt. Hvert einstakt verk hefur sitt eigið einkenni. Ég vona að þið hafið ánægju af því að skoða verkin mín, ef þið hafið áhuga á því að versla eitthvað hjá mér þá endilega hafið samband við mig með því að nota krækjuna mína "Hafa samband", eða hafið beint samband við mig í póstfangið mitt.

Póstfangið mitt er elin@glerkunst.is

 

 
 
 
 

Fréttir

Nýtt glerverk komið í sölu.

Ný glerverk unnin með ösku úr Eyjafjallajökli.

Hverablóm ehf, blóma og gjafvöruverslun í Hveragerði er flutt yfir í verslunarkjarnann að Sunnumörk 2. Við óskum þeim til hamingju með nýja plássið.

Nýtt efni: þrír stjakar saman. Skála sett, desert og konfektskálar. Mikið af nýjum vörum, myndir og kertastjakar í ýmsum litum og búningi. Gjafa öskjur með kertastjaka á tilboði, einnig hægt að fá innpakkað og tilbúið í Sellófan.

Í samvinnu við veitingarhúsið Energíu í Smáralindinni þá hef ég hannað fyrir þau sérstaka matardiska fyrir Pasta og hrísgrjónarétti veitingarhúsins ásamt smárétta bakka.

Sýningin mín í Energíu, tókst mjög vel og vil ég þakka öllum þeim sem sáu sér fært á að koma og skoða verkin mín á sýningunni sem stóð út júní og júlí mánuð. Bestu þakkir til Guðnýjar og Jonna í Energíu ásamt starfsfólki sem stendur sig ávallt frábærlega. Takk takk.


Áhugavert
Skemmtileg síða hjá myndlista konunni Lindu Ólafsdóttur . Mjög svo efnileg myndlistakona. Hérna er vefslóð að nýrri síðu hjá henni www.lindaolafsdottir.com
Aðrar krækjur:
www.hemmiart.com
www.olafs.webs.com




( Vatnslitamynd "Tenerif" )
 Tilbúnar tækifærisgjafir
Tveir litlir stjakar m/kerti innpakkaðir með slaufu verð: 2.500 -

 


Nýtt !

Ný glerverk unnin með ösku úr Eyjafjallajökli



Stór stjaki m/kerti, innpakkaður
með slaufu. Verð: 2.500 -